Byggðasafnið í Skógum 60 áraÞann 1. desember næstkomandi eru 60 ár liðin frá stofnun Byggðasafnsins í Skógum. Frumkvöðull að stofnun safnsins er safnstjórinn Þórður Tómasson. Fyrstu árin lagði honum lið þáverandi skólastjóri Héraðskólans í Skógum, Magnús Gíslason, en hann var áhugamaður um þjóðfræði. Safnið er í eigu héraðsnefnda Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu.
Fyrstu árin voru munir safnsins sýndir í kennslustofum héraðsskólans en árið 1955 var reist myndarlegt safnhús á staðnum. Síðan þá hefur safnið stækkað jafnt og þétt og 1968 hófst uppbygging gamalla bæjarhúsa á safnsvæðinu. Árið 1995 var tekin í notkun glæsileg viðbygging við safnhúsið. En safngripum hélt áfram að fjölga og ljóst var að auka þyrfti við húsakost safnsins. Um aldamótin var því ákveðið að ráðast í nýbyggingu sem var vígð árið 2002. Nýja húsið er 1510 m2 að grunnfleti og hýsir samgöngusafnið, safnbúð og veitingastað safnsins, Skógakaffi. Nú í haust voru hafnar framkvæmdir við 1380 m2 geymslu- og þjónustuhús sem áætlað er að taka í notkun 2012.
Skógar eru á meðal vinsælustu ferðamannastaða landsins og fær Skógasafn yfir 40 þúsund gesti árlega. Byggðasafnið í Skógum er eitt stærsta byggðasafn landsins og Samgöngusafnið í Skógum hefur þróast hratt þótt ungt sé og stöðugt berast því munir til varðveislu. Samgöngusafnið hefur vakið mikla athygli almennings en um 250 þúsund gestir hafa skoðað safnið frá opun þess. Störfum hefur fjölgað verulega með tilkomu samgöngusafnsins, en nú starfa um 20 manns við Skógasafn tímabilið júní til ágúst en yfir vetrartímann eru 6-7 starfsmenn við safnið.
Í tilefni af 60 ára afmælinu verður haldið málþing í héraðsskólahúsinu í Skógum fimmtudaginn 5. nóvember og hefst það kl. 10:30. Á málþinginu verður meðal annars farið yfir sögu safnsins og framtíðarhorfur þess. Í beinu framhaldi af málþinginu verður Safnahelgi á Suðurlandi formlega opnuð í Skógakaffi í Samgöngusafni.
- Dagskrá -10:30 - 10:40 Setning - Formaður safnstjórnar, Ólafur Eggertsson
10:40 - 11:10 Þórður Tómasson - Saga Byggðasafnsins í Skógum
11:10 - 11:50 Gísli Sverrir Árnason - Hugmyndir að Fræðasetri í Skógum
11:50 - 12:10 Uggi Ævarsson - Hlutverk minjavarðar Suðurlands sem hefur aðstöðu í Skógum
12:10 - 13:10 Hádegishlé
13:10 - 13:30 Rögnvaldur Ólafsson - Hlutverk fræðasetra á landsbyggðinni og möguleikar tengdir Skógum
13:30 - 13:50 Mjöll Snæsdóttir - Tækifæri í rannsóknum á starfssvæði byggðasafnsins
13:50 - 14:10 Stefán Örn Stefánsson - Framtíðaruppbygging safnisins
14:10 - 14:30 Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður - Söfn í samtímanum
14:30 - 14:50 Formenn héraðsnefnda Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu
14:50 - 15:30 Umræður
15:30 - 15:45 Afhending heimildarmyndar um Þórð Tómasson
15:45 - 16:00 Sverrir Magnússon - Samantekt
16:00 Málþingi slitið
Fundarstjóri verður Sigurður Sigursveinsson framkvæmdastjóri Háskólafélags Suðurlands.
Skráning á málþingið fer fram hjá Ragnhildi í síma 697-9986 eða á netfanginu
ragnhildur@hfsu.is Lokadagur skráningar er mánudagurinn 2. nóvember 2009. Ekkert þátttökugjald er á málþinginu.