Afgreiðslutími:
Maí og september: kl. 10- 17
Júní, júlí, ágúst: kl. 9-18:00
Október til apríl: kl. 11 - 16
Talstöðvasafn Sigga Harðar opnað í Samgöngusafninu
Í júní sl. var opnuð sýning á merkilegu safni bílatalstöðva í Samgöngusafninu. Það er Sigurður Harðarson, rafeindavirki, sem hefur safnað öllum gerðum bílatalstöðva sem notaðar hafa verið á Íslandi og hann afhendir nú Samgöngusafninu í Skógum þetta safn sitt.
Siggi Harðar hefur safnað tækjunum í 40 ár og þau spanna rúmlega 60 ára sögu fjarskipta á Íslandi. Tækin skipta hundruðum, frá fyrstu Morse-tækjum til gemsa og koma frá fjallamönnum, lögreglu, björgunarsveitum, rútufyrirtækjum, leigubílum, almannavörnum og áhugamönnum um fjarskiptatækni.
Mörg tækjanna á sýningunni eru virk og má heyra viðskipti á Morsi og tali, m.a. samskipti skipbrotsmanna á togaranum Elliða sem fórst 10. febrúar 1962 og björgunarmanna þeirra, en upptaka af samtölum þeirra hefur varðveist.
Sagan á bak við safnið
Árið 1957, þá 13 ára gamall, smiðaði Siggi Harðar fyrsta útvarpstækið sitt og hefur síðan smíðað mörg tæki og sendistöðvar, þar á meðal stærsta hluta endurvarpskerfa Landsbjargar og Ferðaklúbbsins 4x4 á Íslandi, þann hlutann sem notar eingöngu sólarorku. Þetta eru yfir 50 sendistöðvar.
Strax í upphafi hafði Siggi mikinn áhuga á fjarskiptatækjum. Eftir að námi lauk í rafeindavirkjun árið 1966 vann hann meira og minna við fjarskiptabúnað ásamt viðgerðum á útvarps- og sjónvarpstækjum.
Á þeim tíma voru gömul tæki geymd, aðallega til að taka úr þeim. varahluti og þannig söfnuðust fyrir tæki strax í upphafi. Þegar. fjöldinn jókst varð ljóst að tækin hefðu sögulegt gildi og með því að. varðveita eitt eintak af hverri tegund mætti ná heildstæðu safni með. tíð og tíma. Sum tækin hafa verið geymd í 40 ár.
Þegar breytingar hafa orðið á fjarskiptatækninni hér á landi, svo. sem þegar AM-mótuðum talstöðvum var skipt út fyrir SSB-mótaðar 1982, hefur Siggi ávallt haldið eftir eintaki af hverri gerð sem hann hefur komist yfir, stundum með því að komast í geymslur þjónustufyrirtækja sem hafa verið að taka til. Á þann hátt hafa varðveist margar gamlar talstöðvar sem eru nú í þessu safni. Þessi söfnun hefur einnig spurst út í gegnum tíðina og menn hafa gefið gömul eintök.
Elstu tækin eru frá árinu 1945, frá því að fjarskipti voru gefin frjáls á Íslandi eftir stríðið. Það hefur komið sér vel að kunna skil á sögu þessara tækja að Siggi hefur unnið við þjónustu fjarskiptatækja í rúm 40 ár.
til baka
Skógasafn, 861 Hvolsvöllur
sími: 4878845
skogasafn@skogasafn.is