
Vetrargisting fyrir hópa
Margir vita að í Skógum er á sumrin rekið sumarhótel undir merkjum Hótel Eddu. Það sem færri vita er að á veturna er líka boðið upp á gistingu og mat fyrir hópa á hótelinu og er aðstaða og þjónusta t.d. tilvalin fyrir fundi, starfsmannaferðir og/eða árshátíðir.
Á hótelinu er frábær aðstaða fyrir allt að 80 manna hópa. Undanfarin ár hafa hópar af ýmsu tagi, til að mynda klúbbar, háskólanemar, kórar og starfsmannahópar, dvalið hjá okkur og hafa þeir látið afar vel af dvölinni og aðstöðunni.
Verði á gistingu og mat er stillt í hóf. Þjónustan er sveigjanleg og miðast við þarfir og óskir hvers hóps.
Aðstaðan
Herbergin eru alls 34 í tveimur húsum; öll með handlaug. Þau eru snyrtileg, með nýjum rúmum og eldri innréttingum sem er vel viðhaldið. Auk þess er svefnpokapláss fyrir 20 manns í íþróttasal. Heimilisleg setustofa með sjónvarpi er á fyrstu hæð, en veitingasalurinn er á jarðhæð. Í veitingasalnum berum við fram okkar rómaða heimilismat og rétt er að nefna að þar er einnig selt léttvín og bjór. Heitur pottur er á hótelinu.
Fundaraðstaða fyrir allt að 30 – 35 manns er í skólastofu í aðalbyggingu.
Umhverfið
Umhverfið býður upp á mikla möguleika til útivistar; hægt er að fara í styttri og lengri gönguferðir og að sjálfsögðu að skoða Byggðasafnið en þar hefur nýlega bæst við Samgöngusafn. Frá Skógum er mjög auðvelt að nálgast marga áhugaverða staði. Aðeins 5 km austan við Skóga er hægt að komast að Sólheimajökli og stutt er að aka austur til Víkur í Mýrdal, þar sem ýmis þjónusta er í boði, t.d. sundlaug.
Nánari upplýsingar um útivistarmöguleika á svæðinu eru að finna á www.eyjafjoll.is.
Senda fyrirspurn
Hér gefur að líta nokkrar myndir, smelltu á myndirnar til að sjá þær stærri
